Óskasteinn
|
13. janúar 2012 Tryggvagarður – okkar svæði Mánudagsskógarferðahópurinn valdi Tryggvagarð sem svæðið sitt. Við ætlum að fara í Tryggvagarð reglulega fram á vor og týna þar rusl og fylgjast með breytingum sem verða á svæðinu. Mánudaginn 9. janúar 2012 var fyrsta ferðin í Tryggvagarð. Við fundum ekki mikið rusl en eitthvað þó en þó aðalega snjó. Leiðin í Tryggvagarð
|
|
13. janúar 2012 Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Við á Óskasteini hlökkum til að takast á við nýtt ár. Við ætlum að halda áfram með úrgangs/ruslaverkefnið okkar sem við byrjuðum á í haust. Tilgangur verkefnisins er meðal annars að fræða börnin um mikilvægi flokkunar og endurvinnslu og verður vinnan fléttuð inn í allt starf á deildinni. Við stefnum að því að setja reglulega inn fréttir af verkefninu á heimasíðuna okkar, svo endilega fylgist með þar. www.alfheimar.arborg.is Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á dagskipulaginu okkar. Nýtt skipulag er hér í fylgiskjali og er einnig aðgengilegt á heimsíðunni okkar. Það sem helst breytist er það að Sniglahópur fer í hópastarf á fimmtudögum og myndlist hjá Hildu verður á morgnanna milli 9 og 10. Síðustu viku hvers mánaðar ætlum við að fella niður hópastarfstímana okkar og á þriðjudögum verður Óskasteinsfjör en þá vinnum við í stöðvavinnu fyrir hádegi. Stöðvarnar verða þrjár: Hilda verður með myndlist, Aneta verður með kubbatíma, Eva verður með verkefni úr bókinni Lubbi finnur málbein og ýmisleg verkefni tengd bók- og tölustöfum. Á fimmtudeginum ætlum við svo að skipta okkur í smærri hópa og fara í ýmiss konar gamla og nýja leiki í salnum. Við viljum biðja ykkur að fylgjast með fyrir okkur hvort litlir legókallar/annað smádót læðist nokkuð óvart með heim í vösum barnanna. Í fylgiskjali eru textar með þeim lögum sem við ætlum að syngja í janúar og einnig þau lög sem sungin eru í sameiginlegu söngstundinni í salnum. Ég vil svo minna á að hafa nóg af aukafötum í töskum barnanna og viðeigandi útifatnað. kveðja frá Óskasteini |

