Skógarferðir


Myndir

Skógarferðir

Söngtextar

Starfsfólk

Óskasteinn

 

Skógarferðir á Óskasteini vorönn 2011

Vatnið hefur verið til umfjöllunar á Óskasteini á vorönn. Við höfum fræðst um hringrás vatnsins, athugað hvað sekkur og hvað flýtur, hvernig hljóð heyrist þegar vatnsdropi dettur, hvaða dýr lifa í vatni/sjó, hvaða not höfum við af vatni o.fl. Við höfum fræðst um heita vatnið og kalda vatnið, hvernig það kemst í húsin okkar og til þess að fá upplýsingar um það höfum við heimsótt hitaveituna, Sundhöll Selfoss, Set, Slökkvuliðsstöðina, kíkt ofan í skurði þar sem verið er að leggja rör, hvernig hesthús eru kynnt ofl. 

Skógarferðir í október og nóvember 

 

Í skógarferðunum í október og nóvember höfum við verið að fjalla um það hvað hægt sé að búa til úr trjám. Við höfum litið í kringum okkur inn á deildinni og athugað hvort það sé eitthvað sem búið er úr trjám, skoðað umhverfið, farið í heimsókn til  Blöku útskurðarkonu, skoðað smíðastofuna í Vallaskóla og trésmíðaverkstæði Fúsa Kristins. Börnunum fannst mjög gaman að fara í þessar ferðir og sýndu þeim mikin áhuga. Einnig höfum við verðið að finna út aldur trjánna með því að telja árhringina og telja kransana á furutrjánum.

Í einni skógarferðinni fóru börnin að byggja hús og í framhaldi af því fórum við að skoða kort af Selfossi og spá í hinar ýmsu byggingar. Til dæmis býr fólk í öllum húsum? “Nei í sumum er vinna” svaraði ein stelpan.  Einnig ræddum við um það hvernig blokk, par- rað- og einbýlishús líta út. Börnin voru síðan spurð hvaða hús þeim langaði mest að skoða á Selfossi og vildu öll skoða sitt hús. Þannig að í síðust skógarferðum erum við búin að vera að ganga um Selfoss og skoða húsin þeirra. Í skógarferðunum á miðvikudögum er að byrja víkingaþema og voru það galvaskir víkingar sem skunduðu í skóginn með sverð og skyldi í morgun.

Skógarferðir í september   

Í september hefur veðrið leikið við okkur í skóginum og hafa börnin unað sér við leik og störf. Á haustin koma sveppirnir og hafa börnin verið að skoða og rannsaka hinar ýmsu sveppategundir ásamt því að skoða inn í sveppina og athuga hvaða dýr leynast inn í þeim.

Í einni ferðinni var markmið að auka þekkingu barnanna á bókstöfum með því að tengja þá við fyrirbæri úti í náttúrunni og efla hljóðkerfisvitund þeirra. En þá voru stafirnir faldir viðsvegar í skóginum t.d. B hjá birkitré, G hjá grein o.s.frv.  

Í þessari viku höfum við verið með listasmiðju í skóginum þar sem markmiðið er að börnin fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og sjái að hægt er að nota ýmsan efnivið í náttúrunni til sköpunar. Börnin hafa tálgað, málað með mold og teiknað með kolum sem við fundum á eldstæðinu við Gesthús. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr skógarferðunum.

 

 

Við setjum spýtuna upp við tréð, höldum í greinina og  

svo er bara að láta sig hanga

 

 

 

Hér er verið að mæla skuggann áður en haldið er inn í skóginn, á leiðinni heim var hann aftur mældur og viti menn skugginn hafði færst úr stað. En börnin voru ekki lengi að finna ástæðuna “Sólin er búin að færast

 

Hér er verið að mála með mold og teikna með kolum

 

Negli og saga og smíða…….

Hvað leynist þarna????

 

Við fundum svepp:)

 

Hátt upp í tré

Hvað fannst þér skemmtilegast í skóginum í dag????

Skógarferð á óskasteini

23 ágúst 2010

 

Í dag kveiktum við bál og hituðum okkur kakó og grilluðum epli. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr ferðinni.

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

Í fyrstu gekk erfiðlega að kveikja eldinn, en þetta tókst allt saman vel.

 

 

Þá var komið að því að blanda kakóið

 

 

og skera eplin í báta

 

Þá er búið að setja pottinn yfir og svo eru það bara eplin

 

 

 

Það var gott að fá sér heitt kakó

 

og epli með kanilsykriJ

 

Skógarferðir veturinn 2010 – 2011

Skógarferðirnar verða á mánudögum og miðvikudögum í vetur og verða hóparnir þessir:

Mánudagur                                     Miðvikudagur   

Styrmir                                                                   Dagur Rafn

Karólína Helga                                                        Jakob Freyr

Eva                                                                        Ásgeir

Arnheiður Soffía                                                     Alexander

Einar Bjarki                                                             Nökkvi

Patrekur                                                                 Jón Finnur

Ólafía Guðrún                                                        Vilberg

Lísbet Ása                                                             Heiðar

Hanna                                                                    Matthías

Guðrún Ásta

Ævar Kári

 

Skógarferð  16 ágúst 2010

Veðurfræðingu: Karólína

Forystusauður: Styrmir

Í dag fórum við að veiða í tjörninni. Við vorum með háfa, box og föt til þess að geta skoðað aflann. Við fundum brunnklukkur, margfætlur, kuðunga o.fl. Einnig voru smíðaðir bátar sem sigldu á tjörninni.

Síðan var haldið inn í skóg þar sem við settumst niður í kennslulundinn okkar. Við fórum í leik þar sem allir áttu að finna sér hlut í skóginum. Hvert barn fékk að segja frá sínum hlut, síðan hjálpuðumst við að finna út hver væri fyrsti stafurinn í orðinu og fundum stafinn á kennaraborðinu (en á því eru bæði bók- og tölustafir) Einnig spiluðum við minnisspil með hlutina.

Eftir matinn týndum við ber sem smökkuðust mjög vel, einnig fundum við snigla og var gaman að fylgjast með þeim skríða.

Bestu kveðjur

Arnheiður Soffía, Karolína, Eva, Einar Bjarki, Alexander Ólafía Guðrún, Anna Gína og Aneta

 

 Foreldraheimsóknir í skóginum

 Við viljum þakka foreldrum og öðrum aðstandendum kærlega fyrir góðar stundir í skóginum í liðinni viku. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir

Tryggvaskáli, Ölfusá, brúin, Jóruklettur og Jóra

Sungið og trallað

 

Flottur kór

 

Sumar og sól