Skógarferðir
Skógarferðir í mars og apríl 2011
Samgöngur hafa átt hug okkar allan eftir áramót og höfum við rætt um þær allt frá sauðskinsskóm til bíla, flugvéla og skipa ásamt því að fjalla um mengun, hvaða farartæki menga og hver ekki og hvernig við getum minnkað mengun. Við heimsóttum Bílaþjónustu Péturs til að fræðast nánar um bílinn.
Við höfum gert tvær kannanir, í þeirri fyrri athuguðum við hvernig starfsfólk leikskólans kom í leikskólann og voru flestir sem komu á bílum. Í seinni könnuninni settumst við niður við Engjaveginn og athuguðum á 5 mínútum hvernig samgöngutæki færu framhjá og voru bílar þar í miklum meirihluta.
Við fræddumst um póstsamgöngur fyrr og nú, strákarnir sendu Sigga bréf til Kanda og stelpurnar sendu strákunum bréf.
Á haustönn fræddumst við um Ölfusá og heilluðust börnin af sögunni af mjólkurbílnum sem féll í ánna. Í næstu viku ætlum við að nýta okkur almenningssamgöngur og taka strætisvagninn niður að Eyrarbakka og skoða varadekkið sem bjargaði manninum frá drukknun en varadekkið er í Húsinu á Eyrarbakka.
Skógarferðir á Völusteini í janúar og febrúar 2011
Það hefur verið nóg að gera í skógarferðunum á Völusteini í janúar og febrúar. Við héldum þorrablót og borðuðum hefðbundin þorramat, einnig spáði valan fyrir okkur.
Snjórinn kom loksins og notuðum við hvert tækifæri til þess að fara upp á stóra hól að renna.
Samgönguverkefnið er í fullum gangi, strákarnir fóru á pósthúsið með bréf til Sigga og var vel tekið á móti okkur. Stelpurnar eru búnar að skrifa strákunum á Völusteini bréf og teikna myndir handa þeim og ætla þær að póstleggja bréfið í næstu skógarferð. Mikill áhugi er á mengunn og er ætlunin í mars að fjalla nánar um mengun og hvað hægt er að gera til þess að minnka hana.
Skógarferð í október og nóvember
Það hefur margt verið brallað í skógarferðunum í haust. Snemma í október var listsköpun í skóginum og fengu börnin tækifæri til þess að tjá sig með náttúrlegum efnivið. Þau máluðu með mold og teiknuðu með kolum sem þau fundu í eldstæðinu. Penslarnir voru strá, gras, könglar o.fl.
Stelpurnar hafa sýnt listsköpun mikin áhuga og verið að skapa hina ýmsu hluti úr trjágreinum. Þær hafa tálgað smjörhnífa, varaliti, trommukjuða og margt fleirra. Við ákváðum að fara í heimsókn í smíðastofuna í Vallaskóla og sjá hvað börnin þar væru að búa til.
Strákarnir hafa hins vegar verið að kynna sér sögu Selfoss og eru bækurnar Saga Selfoss 1 og 2 ómissandi þáttur í þessari upplýsingaleyt. Við höfum fræðst um Tryggva Gunnarsson, skoðað Ölfusárbrú og kynnt okkur hvernig gamla brúin hrundi. Einnig höfum mælt hvað flóðin náðu hátt upp á brúnna og talið hurðarnar á Tryggvaskála. Við skoðuðum gömlu Selfossbæina og fannst strákunum merkilegt að einu sinni hafi þessi hús verið einu húsin á Selfossi. Í þessari viku veltum við því fyrir okkur hvort það lifðu einhver dýr í Ölfusá og stóð ekki á svörunum, “kolkrabbi, rækjur, lax”.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr skógarferðunum hjá prinsessuhópnum en það nafn völdu þær á hópinn í síðustu skógarferð.
|
Úti að borða |
Samverustund eftir matinn og kisa kúrir á bakpokanum og hlustar á sögu. En þessi köttur var með okkur í skóginum í heilan dag og fylgdi stelpunum eftir hvert sem þær fóru |
|
Góðar vinkonur hjá reynitré |
Úti á sjó í miklum öldugangi |
Skógarferðir í ágúst og september
Margt hefur verið brallað í skógarferðunum í ágúst og það sem liðið er af septembermánuði, má þar nefna útieldun þar sem við hituðum kakó og grilluðum epli á opnum eldi. Fmmtudagshópurinn á eftir að elda og stefnum við að því núna í september.
Eitt verkefnið snérist um að greina plöntur og skordýr og fór það þannig fram að hvert barn kastaði hring tilviljanakennt frá sér, allur hópurinn skoðaði vel hvað var innan hringsins og ef eitthvað var óljóst þá var rýnt í greiningarbækur.
Verkefni síðasta fimmtudags var að auka þekkingu barnanna á bókstöfum með því að tengja þá við fyrirbæri út í náttúrunni og efla hljóðkerfisvitund þeirra (Þetta verkefni var framkvæmt hjá fimmtudagshópnum) Kennarinn faldi stafina í umhverfinu, T hjá tré, K hjá kletti, F hjá furu o.s.frv. Þegar börnin fundu stafina og voru búin að finna út hvað þeir hétu og segðu fundum við í sameiningu hvaða dýr ætti stafinn og að lokum sungum við “Ég fór í dýragarð í gær”
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar svipmyndir úr ferðunum.
|
Strákarnir að bíða eftir skógarsafanum |
Sjáiði ég fann svepp! |
|
Upp og niður stóra hól |
Hoppað ofan í skurð |
|
Við erum allveg að komast út úr göngunum, en þetta er frekar erfitt. |
Verið að tálga |
|
Gott að fá sér skógarsafa áður en byrjað er á verkefnum dagsins |
Tálgað og pússað |
|
Hér er verið að ryksuga með þessari fínu ryksugu |
Alltaf gaman tálga |
Skógarferðir veturinn 2010 – 2011
Skógarferðirnar í vetur eru á þriðjudögum og fimmtudögum. Farið verður í skóginn kl, 10:00 og er heimkoma um 14:30. Við ætlum að borða í skóginum og munum við eins og síðastliðin vetur hafa aðstöðu í tjaldmiðstöðinni.
Skógarhóparnir eru þessir:
Þriðjudagar Fimmtudagar
Birkir Óli Aðalbjörg Sara
Björn Ívar Ásgerður Birna
Einar Bragi Erla Margrét
Einar Dagur Eydís Ósk
Guðjón Guðrún Katrín
Guðni Júlía Katrín
Ísak Kristinn Viktoría Valný
Jóhannes Anton
Jón Zakarías
Kristján Emanuel
Magnús Dagur
Sævin Máni
Tómas Ægir
Skógarferð 10 ágúst
Forystusauður: Björn Ívar
Skógurinn var mikið breyttur síðan við vorum þar síðast. Grasið var næstum því jafn hátt og strákarnir og ætluðum við varla að rata inn. Það var ýmsilegt sem varð á vegi okkar í dag í skóginum, s.s. sniglar, ánamaðkar, krækiber, geitungar og margt fleira.
Foreldraheimsókn í skóginum
Við viljum þakka foreldrum og öðrum aðstandendum kærlega fyrir notalega stund í skóginum. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr leikritinu Töfraskórnir.
Vilhjálmur í heimsókn hjá Galdra
Heimili dverga og álfa















