Grænn dagur

Grænn dagur í Áfheimum

Þriðjudaginn 19. september 2017

Í tilefni af degi íslenskrar náttúru sem var laugardaginn 16. september verður grænn dagur í Álfheimum á morgun þriðjudag.

 

Þá er gaman ef börn og starfsfólk klæðist grænu fötunum sínum og úti í garði ætlum við meðal annars að setja niður haustlauka, taka upp og hreinsa kartöflubeðin, mála úr náttúrulegum efnum og hafa útieldun.