Fundir umhverfisráðs


 

     

Umhverfisráð  11.ágúst   2011.

 Mættar: Fríða, Dísa, Hilda, Hjördís, Anna Gína og Ingibjörg.

1.      Rætt um söfnunarkassana og kartöflugarðanna. Mikil órækt í kartöflugrösunum skorum á allar deildir að hreinsa arfann og gera sín beð hugguleg

2.      Handþurrkur starfsfólks eiga að fara ofan í körfuna ekki ofan á lokið 

3.      Endurnýjun grænfánans næsta vor 2012. Gott að skoða heimasíðu Landverndar landvernd.is

4.      Grænfánaþemu Völusteins verða átthagar og Óskasteinn verður með úrgangur og orka.

5.      Tiltektarvika 22.ágúst – 26.ágúst 2012. Allir taka til á sínu svæði bæði inni og úti.

6.      Muna nýju eldunaraðstöðuna í garðinum skoðið muurikka.is   margt sniðugt þar.

7.      Næsti fundur þriðjudagur 27.september kl;8,15

Fundi slitið

  

Umhverfisráð  17. maí   2011.

 Mættar: Fríða, Dísa, Hilda, Hjördís, Anna Gína og Sólveig

1.       Endurmat á umhverfisdegi: Leggjum til að það verði heil vika næst. Eldað á síðasta degi. Það á eftir að klára nokkur svæði allir hjálpast að við það. J

2.      Vorhátíð 26. maí frá 14:00 -16:00. Hugmynd foreldrafélags að foreldrar komi og vinni með. Það á að búa til leiktæki og húsgögn. Raggi afi og Bjössi afi koma og hjálpa til við smíðavinnu. Ræktunarbeð verða tekin í gegn. Þrautabraut gerð.

3.      Hugmynd um að laga Svanga manga svæði og safnkassa. Færa jafnvel tunnurnar og henda kössunum eða smíða nýja.

4.      Pylsur og djús á Vinnu og Vorhátíð.

5.      Athuga með að kaupa sápukúlur fyrir vorhátið hafa eitthvað einfalt fyrir þau að gera hver deild sér um eitt atriði.

6.      Foreldradagur Óskasteins í skóginum tókst alveg ofboðslega vel og er kominn til að vera. Stöðvavinna: 1 vatnsveita 2 smíðað, sagað og tálgað 3 náttúruefni notað í myndsköpun og 4 náttúruskoðun.

7.      Hjóladagur 24.maí athuga með að fá allt planið.

Fundi slitið.



Umhverfisráð  26.apríl   2011.

 Mættar: Fríða, Dísa, Hilda, Hjördís, Anna Gína, Sólveig og Ingibjörg.

1.      Dagur umhverfisins 25.apríl sem er annar í páskum en hann verður haldinn 27.apríl. þá er bíllaus dagur – tiltekt á úti – og innisvæðum sem hefst kl;10,00 og gert er ráð fyrir öllum í tiltekt, þ.e.a.s.allir koma út.

Boðið verður upp á heitt ketilkakó  og ýmisslegt fleira

2.      Hjólað í vinnuna 4. – 24.maí – Hanna Rut og Anna Gína sjá um að skrá lið Álfheima

3.      Sveinn Þórarinsson afi Guðjóns og Ársæls hefur smíðað grind úr skeifum til útieldunar og verður hún vígð á morgun ásamt útileldunartækjum sem foreldrafélagið gaf.

4.      Náttúruspil – 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið, sjá stokk í kaffistofu

5.      Rætt um útsæði og blómarækt

6.      Rætt um vorhátíð sem gert er ráð fyrir að verði 26.maí.

7.      Næsti fundur 17.maí kl:8,10

Umhverfisráðsfundur 29.mars 2011.

Mættar: Fríða, Dísa, Hilda, Hjördís, Anna Gína, Ragnar, Sólveig og Ingibjörg.

1.      Ábyrgðarsvæði – skoðað og endurskipulagt.

2.      Skoðuðum grein í Stúdentablaðinu 1.tbl. 2011 studentabladid.is eða google.com

3.      Dagur umhverfisins 25.apríl sem er annar í páskum en hann verður haldinn 27.apríl – verður bíllaus dagur – tiltekt á úti – og innisvæðum.

4.      Í tilefni af grænum apríl verður grænn dagur 14.apríl, græni liturinn verður ríkjandi

5.      Googlið grænan apríl - þá fáið þið margar góðar hugmyndir

6.      Næsti fundur 26.apríl kl;8,15

 

Umhverfisráð 22.febrúar 2011.

 

 

 

 

Mættar: Fríða, Dísa, Hilda, Hjördís, Anna Gína og Ingibjörg

 

1.      Sögðum frá nýju gólfefnunum, ný áhöld verða keypt í dag og svo þurfa allir að ganga frá eftir sig hvort sem það er ræstingafólk eða við sem störfum í leikskólanum dags daglega. Talað verður við ræstingafólk vegna mottanna o.fl.

2.      Athuga með að endurnýja handklæði og sængurver.

3.      Anna Gína og Hilda kynntu drög að umhverfissáttmála barna.

4.      Skóladagatalið – setja viðburði inn það – vera með átaksvikur – heimsókn í RKÍ húsið.

5.      Átaksvika 14.- 18.mars – spara rafmagn, sól hækkar á lofti, þurfum ekki öll þessi ljós, passa að láta ekki loga í mannlausum herbergjum.

6.      Rætt um ruslatínslu, hvað þau tína og hvað ekki?? Skiptar skoðanir.

7.      Hljóðvist rædd á næsta fundi.

8.      Útikennsla í Álfheimum 10 ár síðan hún byrjaði í ágúst 2011.

9.      Næsti fundur 29.mars kl:8,15

 

Spakmæli:

Manneskjan deyr og verður að mold,

en plastpokarnir sem hún skilur eftir sig alls staðar lifa eilíflega.