Hjóladagur í Álfheimum 27. maí

Starfsfólk leikskólans tekur þátt í átakinu “hjólað í vinnuna” sem Íþróttasamband Íslands stendur fyrir dagana 7. – 27.maí 2014.

Í tilefni þess verður hjóladagur í Álfheimum 27. maí.

Þá mega börnin koma með hjólin sín í leikskólann og hjólað verður á bílaplaninu fyrir framan leikskólann.  Einnig hægt að koma með sparkbíla eða hlaupahjól.

Minnum á að skylda er að allir eiga að vera með hjólahjálma.