Leikskólataskan

Það er markmið okkar hér í leikskólanum að börnunum líði sem best í leik og starfi. Til þess að þeim líði vel er nauðsynlegt að klæðnaður þeirra sé þægilegur og uppfylli þær kröfur að barninu sé hlýtt, það sé þurrt og fötin hefti það ekki við leik.

Útiföt þurfa að vera þægileg og helst þannig að barnið geti hjálpað sér sem mest sjálft.
Á Íslandi er allra veðra von þannig að það er nauðsynlegt að hafa föt við hæfi í leikskólanum.
Í leikskóla eru börn að leika sér. Þau eru að föndra, borða, þvo sér og leika úti. Í þessum verkefnum geta fötin blotnað eða orðið skítug.    Þess vegna er mikilvægt að börnin séu með föt til skiptanna.

Hér er listi yfir það sem við teljum að nauðsynlegt sé að hafa í leikskólanum. Við skiptum þessum lista í tvennt. Listinn getur þó verði mismunandi eftir börnum og aldri.

Munið að merkja fötin vel. 

Fylgist líka vel með hvað fer úr skjóðunni og munið eftir að taka blaut/óhrein föt með heim eftir hvern dag.

Einnig er mikilvægt að athuga hvort skór/kuldaskór/vaðstígvél og útigalli/regngalli séu blaut.  Við hér í Álfheimum höfum ekki þurrkaðstöðu og föt/skór geta því verið lengi að þorna.

 

Listi

1. Útiföt

  • Pollagalli
  • Kuldagalli
  • Hlý peysa
  • Húfa
  • Ullarsokkar
  • 2 -3 pör af vettlingum
  • Kuldaskór yfir vetrartímann
  • Vaðstígvél
  • Léttir skór yfir sumartímann
  • Létt húfa eða buff yfir sumartímann.

2. Aukaföt

  • 2-3 nærbuxur
  • 2-3 nærbolir
  • 2 sokkar/sokkabuxur
  • 1 buxur
  • 1 bolur
  • 1 peysa