Leikskólakennaranemar frá Belgíu

Þessa vikuna eru fjórir leikskólakennaranemar frá Belgíu hjá okkur í vettvangsnámi. Anke er á Álfasteini, An er á Dvergasteini, Lieselotte á Óskasteini og Kathy á Völusteini.

Álfheimar hafa verið í samstarfi við Háskólann Artevelde í Belgíu frá því 2015 en á hverju vori koma leikskólakennaranemar frá þeim í vettvangsnám til okkar. Í ár koma tveir hópar en seinni hópurinn kemur í maí.