Rafmagnslaus dagur 11.janúar 2012 Rafmagnslaus dagur verður í leikskólanum Álfheimum miðvikudaginn 11.janúar frá kl; 7,45-13,00. Boðið verður upp á heitt kakó og brauð við eldstæðið úti í garði frá kl:8,30. . Engin ljós verða kveikt og rafmagnstækin hvíla sig þennan tíma. Tilgangurinn er að gera okkur öll meðvitaðri um mikilvægi rafmagns og spara orku. Gaman væri ef börnin hefðu með sér vasaljós og gott er að merkja þau vel.