Dvergasteinn





  Myndir  Skógarferðir Söngtextar   Starfsfólk Dvergasteinn



Dagskipulag


Útivera


                                                                                        2. Febrúar 2012


Sæl verið þið
Á mánudaginn næstkomandi 6. febrúar er dagur leikskólans. (Sjá nánar bréf/e-mail frá Ingibjörgu)
Þá ætlum við að gera okkur glaðan dag og bjóða ykkur foreldrum og öðrum sem hafa áhuga
að kíkja til okkar í heimsókn.
Álfa- og Dvergasteinn ætla að sameinast í salnum klukkan 15:00.
Við ætlum að bjóða ykkur að koma og vera með okkur í söngstund og koma síðan inn á
Dvergastein og þiggja léttar veitingar með okkur.
Vil ég líka minna ykkur á að koma ekki með dót í leikskólann nema bangsa/mjúkt dýr í hvíldina.

Bestu kveðjur Hanna Rut

27. janúar 2012  

Komið þið sæl öll sömul.

Krummaþemaið gengur mjög vel hjá okkur og gaman að tengja það við skógarferðirnar og útiveruna hjá okkur. Eru allir hópar búnir að teikna krummamynd. Erum líka að læra orð sem að tengjast Krumma og hvað orðin þýða. Eins og klær, fjarðir, stél, vængir, goggur og laupur. Einnig erum við að lesa krummavísu, syngja krummalög og gefa honum að borða í skógarferðunum.

Einnig erum við mikið að lita og klippa og eru hér  gögn um það frá Iðjuþjálfa.

Skjal 1   Skjal 2

Bestu kveðjur frá okkur á Dvergasteini.

________________________________________________________________________________________

10. janúar 2012

Komið þið öll sömul sæl og blessuð og gleðileg ár.

Desember var rólegur og skemmtilegur hjá okkur og gekk allt saman mjög vel.

Núna í janúar höfum við ákveðið að taka fyrir þemað Krummi. Hann er svo nálægt okkur og tengist mikið skógarferðunum okkar. Hlökkum við til að fræðast meira um hann.

Höfum við ákveðið að á föstudögum þegar skógarferðirnar eru þá skiptast Halla og Hjördís skiptast á að fara í skógarferð. Halla fer í skógarferð í janúar og febrúar og Hjördís mars og apríl. Ætlum að prufa þetta svo við allar förum í skógarferðir.

Hérna er smá fróðleikur útiveru og heilsufar leikskólabarna.

Margir telja að veikindi barna megi gjarnan rekja til útiveru þeirra í köldu og röku loftslagi en rannsóknir á heilsufari leikskólabarna benda hinsvegar til að lasleika þeirra megi oft á tíðum rekja til sýkinga.

Karl G. Kristinsson (2000) yfirlæknir sýklafræðideildar Landspítala háskólasjúkrahúss, talar um í grein sinni " Leikskólaar og sýkingar" sem birtist á vefsíðunni Doktor.is að þær sýkingar sem séu algengastar hjá börnum á Vesturlöndum berast á milli þeirra með úðasmiti eða snertingum, þannig að nálægð við smitaða einstaklinga auki hættu á smiti. Hann talar um að sýnt hafi verið fram á með rannsóknum að yfir sumartímann þegar meira sé um útiveru séu færri tilfelli sýkinga en yfir vetratímann. Rannsókn sem Grahn og fleirri (1997) gerðu leiddi í ljós að börn sem léku sér úti í náttúrunni allan ársíns hring urðu sjaldnar veik en jafnaldrar þeirra sem léku sér að mestu innandyra eða á hefðbundnum leikvöllum (bls:16. Allir út í náttúruna, maí 2008)

Bestu kveðjur frá okkur á Dvergasteini.

______________________________________________________________________________________________


Komið þið nú öll sæl og blessuð.

Í nóvember erum við búin að verða að klára “leyndarmálið” okkar og hefur það gengið vel.
Foreldraviðtöl eru búin en minni ég foreldra á ef það er eithvað sem þau vilja ræða við mig þá er hægt að panta tíma eða senda mér e-mail.
Einnig höfum við verið að hlusta og lesa um Lubbi finnur málbein.
Í desember fellur niður allt hópastarf og ætlum að að dúlla okkur og föndra jólaskraut, hlusta á jólalög og hafa það notalegt.

Sólrún er í afleysingum hér á Álfheimum en Dvergasteinn er hennar “heima” deild þannig að hún byrjar alltaf á því að koma inn til okkar fyrst á morgnana og stundum fáum við að hafa hana hjá okkur yfir daginn.

Annars er desember skemmtilegur og spennandi tími sem við ætlum að njóta.

 Kveðja

Hanna Rut og starfsfólk á Dvergasteini.