Dagur leikskólans er 6 febrúar ár hvert. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Frá þeim tíma hefur átt sér stað markviss umræða um gildi leikskólans í íslensku samfélagi.
Dagur leikskólans – “opið hús” í leikskólum Árborgar 4.febrúar 2011.
Dagur leikskólans er 6 febrúar ár hvert. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Frá þeim tíma hefur átt sér stað markviss umræða um gildi leikskólans í íslensku samfélagi.
Markmið með degi leikskólans:
- Að gera þegna þjóðfélagsins betur meðvituð um þýðingu leikskóla fyrir börn
- Að skapa jákvæða ímynd um leikskólakennslu og auka áhuga fólks á starfinu.
- Að beina athygli þjóðarinnar að stöðu leikskólans, gildi hans fyrir menningu og þjóðarauð
Dagur leikskólans verður að þessu sinni haldinn hátíðlegur föstudaginn 4.febrúar þar sem 6.febrúar ber upp á sunnudag.
Í Sveitarfélaginu Árborg verða leikskólarnir með “opið hús” frá 10,00-15,00. Leikskólarnir kynna starfsemi sína hver með sínum hætti.Þess má geta að nemendur úr leikskólanum Hulduheimum leggja af stað í vettvangsferð kl:10.00 og á útileiksvæðinu við leikskólann Álfheima verður boðið upp á heitt kakó frá kl:10,00 – 11,30. Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að líta við og kynna sér leikskólakennslu í Sveitarfélaginu Árborg.
Leikskólarnir eru eftirfarandi;
Leikskólinn Álfheimar/skóli á grænni grein Sólvöllum 6 Selfossi
Heilsuleikskólinn
Heilsuleikskólinn
Leikskólinn
Leikskólinn Jötunheimar Norðurhólum 3 Selfossi
Heilsuleikskólinn
Með góðri kveðju, leikskólastjórar leikskólanna.