Vorhátíð leikskólans Álfheima verður haldin fimmtudaginn 26.maí ef veður leyfir og hefst kl:14.00 og lýkur kl;16,00.
Vorhátíð leikskólans Álfheima verður haldin fimmtudaginn 26.maí ef veður leyfir og hefst kl:14.00 og lýkur kl;16,00.
Að þessu sinni höfum við skipulagt í samráði við Foreldraráð vinnudag þar sem smíðuð verða nokkur leiktæki á lóð Álfheima s.s. borð, farartæki o.fl. Allir eru velkomnir að taka þátt í þessum verkefnum og gott væri að sjá marga hamra og sagir á lofti.
Anna Gína verkefnastjóri útikennslu hefur yfirumsjón með verkinu.
Efnivið og áhöld lætur umhverfisdeild Árborgar okkur í té.
Ævintýraland og útieldun verða á staðnum
Pylsur og tilheyrandi kr.300,- fyrir gesti.
Leikskólanemendur greiða ekki fyrir matinn.
Ps. Við fylgjumst vel með veðri og öskufallsspá en stefnum ótrauð á þennan dag. Fylgist vel með skilaboðum á töflunni og/eða í tölvupósti.