Bíllaus dagur.
Starfsfólk leikskólans tekur þátt í átakinu “hjólað í vinnuna” sem Íþróttasamband Íslands stendur fyrir dagana 9. – 29.maí 2012.
Í tilefni þess verður hjóladagur í Álfheimum 9. maí. Þá mega börnin koma með hjólin sín í leikskólann og hjólað verður á bílaplaninu fyrir framan leikskólann.
Jafnframt er óskað eftir því við eftir því að starfsfólk og foreldrar sem mögulega geta skilji bílana eftir heima og komi hjólandi eða gangandi í leikskólann 9.maí.