Hjóladagur í Álfheimum miðvikudaginn 9. maí

 Bíllaus dagur.

 

Starfsfólk leikskólans tekur þátt í átakinu “hjólað í vinnuna” sem Íþróttasamband Íslands stendur fyrir dagana 9. – 29.maí 2012.

 

Í tilefni þess verður hjóladagur í Álfheimum 9. maí. Þá mega börnin koma með hjólin sín í leikskólann og hjólað verður á bílaplaninu fyrir framan leikskólann.

  

Jafnframt er óskað eftir því  við eftir því að starfsfólk og foreldrar  sem mögulega geta skilji bílana eftir heima og komi hjólandi eða gangandi í leikskólann 9.maí.