Maxímús kætist í kór.

 

Þann 23. Apríl kl. 11.15 er börnum sem fædd eru árin  2008 og 2009  boðið að koma í Íþróttahús Vallaskóla og hlusta á tónsöguna Maxímús Músíkús kætist í kór.

Það er Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt músinni skemmtilegu Maxímús Músíkús og sögumanni sem flytja. Það er Menningarráð Suðurlands sem stendur fyrir þessum viðburði og kunnum við því bestu þakkir fyrir.