Bleikur dagur 12.október 2017
Október er mánuður Bleiku slaufunnar og árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Í Álfheimum verður bleikur dagur fimmtudaginn 12. október.
Þá klæðumst við bleikum fatnaði og bleikur fiskur (bleikja) með tilheyrandi í hádegismat.