Fréttabréf

Hér er hægt að nálgast nýjasta fréttabréf Álfheima


Aðventan í Álfheimum


Aðventan í Álfheimum er ævinlega skemmtilegur tími í


leikskólastarfinu. Börnin fyllast tilhlökkun sem gaman er að


taka þátt í. Þau byrja að syngja jólalög, segja frá því sem er


að gerast heima, hvað þau langar að fá í jólagjöf og svona


mætti lengi telja.


Leikskólastarfið tekur á sig jólablæ. Börnin útbúa jólagjafir


handa foreldrum sem þau ganga frá sjálf með hjálp kennara.


Jólasögur eru sagðar, hlustað á og sungin jólalög, í


myndmennt er þemað jólin.


Í þessu tölublaði Álfheimafrétta eru ýmsir viðburðir


tíundaðir sem eru orðnir fastir liðir í leikskólastarfinu.


Ýmisslegt fleira verður í boði s.s. skógarferðir foreldra sem


Anna Gína auglýsir nánar í næstu viku og kaffihúsastemming


verður á deildum í vikunni fyrir jól.


Óskum ykkur og okkur öllum gleðilegrar aðventu og hlökkum


til samverustunda í desember.


1. Spádómskerti


2. Betlehemskerti


3. Hirðakerti


4. Englakerti


Aðventukrans


Álfheimafréttir


22.árgangur


12.tbl.des..2010


Efnisyfirlit.


Aðventan í Álfheimum


Jólatréð sótt 7.desember.


Leiksýning 8.desember


Rauður dagur 9.desember


Kirkjuferð 10.desember


Jólaglugginn 13.desember


Opið hús 13.desember


Jólamatur 16.desember


Litlu-jól 29.desember.


Fundargerð foreldraráðs


26.nóvember 2010


Frá Foreldraráði.


Skipulagsdagur 3.janúar


2011


Aðventan í Álfheimum.


7.desember kl:9,15. munu börn fædd 2005 fara í Garð jólanna(Tryggvagarð)


Starfsfólk Umhverfisdeildar tekur á móti börnunum og býður upp á heitt kakó


og kremkex. Jólasveinninn mun heiðra samkomuna með nærveru sinni með því að


syngja með börnunum og afhenda þeim jólatré úr skóginum sínum.


8.desember kl;14,00


Brúðuleikrit aðventunnar í Álfheimum.



Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimum í Borgarnesi kemur hingað í Álfheima með


skemmtilega og fallega jólasögu sem er unnin upp úr evrópskri þjóðsögu sem


flestir ættu að kannast við. Hann nýtur aðstoðar hrífandi leikbrúða sem unnar


eru úr tré, lifandi tónlistar og virkrar þátttöku áhorfenda.


Foreldraráð Álfheima hefur ákveðið að greiða fyrir þessa sýningu og er hún


fyrir öll börn leikskólans.


9.desember, rauður litadagur í Álfheimum—þá klæðumst


við rauðu— syngjum jólasveinalög og hlustum á


jólasveinasögur.


10.desember


er heimsókn í Sefosskirkju


kl:11,30. Þangað fara öll börn af Álfa– Óskaog


Völusteini. Ninna Sif æskulýðsfulltrúi


tekur á móti börnunum ásamt öðru starfsfólki


kirkjunnar.



13.desember– Álfheimar 22 ára.


Þá höldum við upp á


afmælið með “opnu húsi” frá kl;14,00—16,00 í sal Álfheima.


Boðið verður upp á smákökur og drykki fyrir börn og


fullorðna. Allir velkomnir.



13.desember kl;13,00


opna börnin á Óskasteini jólaglugga í skóginum sem er


liður í Jól í Árborg en fyrirtæki og stofnanir í Árborg telja dagana til jóla með


því að opna einn jólaglugga á dag frá 1.desember og munu Bókasafn Árborgar á


Selfossi og Héraðsskjalasafn Árnesinga opna fyrsta gluggann 1.desember.


Jólagluggi Álfheima verður staðsettur við gangstíginn hjá Grýlupottunum.



16.desember –


jólamatur í Álfheimum að hætti Fríðu og


Hrannar í eldhúsinu,


namm,namm!



29.desember—litlu jólin


í sal Vallaskóla kl:14,30


Nánar auglýst.


22.árgangur


12.tbl.des..2010


Fundargerð foreldraráðs 26.nóvember 2010


Mættir:Ingibjörg, Margrét Jóna,Ragna, Karólína og Linda Rut.



Piparkökumálun gekk mjög vel—góð þátttaka foreldra og barna




Innheimta félagsgjalda í foreldrafélaginu rædd.




Rætt um jólasýningu frá Brúðuheimum “Pönnukakan hennar Grýlu”


Ingibjörgu falið að kanna málið.




Jólagluggi í skóginum opnaður 13.desember kl;13,00—liður í Jól í Árborg.


Nemendur Óskasteins sjá um að skreyta hann og opna.




Anna Gína og börnin í skóginum bjóða foreldrum í skóginn 8.-10.des. Nánar


auglýst á hverri deild fyrir sig.




Afmæli Álfheima 13.desember—opið hús frá kl:14,00-16,00.




Leikskólinn þakkar fyrir höfðinglega gjöf/hljómborð frá Foreldrafélaginu


sem afhent var 16.nóvember s.l




Litlu jól—29.desember kl;14,30 í sal Vallaskóla. Athuga með




foreldrahljómsveitina “pabbabandið”




Næsti fundur Foreldraráðs 7.janúar 2011 kl:8,10



Frá Foreldraráði.


Foreldraráð vill þakka þeim sem greitt hafa árgjaldið 1,500,-kr en tæplega


helmingur félagsmanna hafa greitt það. Foreldraráð hefur staðið fyrir einni


leiksýningu ári, séð um útskriftargjafir, tekið þátt í rútukostnaði og nú síðast


gefið leikskólanum hljómborð að gjöf.


Þeir foreldrar sem mögulega sjá sér fært að greiða 1,500,-kr. eru vinslamlega


beðnir um að gera það sem fyrst því það auðveldar gjaldkera að gera


kostnaðaráætlun. Reikningnúmerið er kt;541108-1060 nr:0152-26-8070


Skipulagsdagur 3.janúar 2011.


Álfheimar verða lokaðir vegna


skipulagsdags starfsfólks mánudaginn 3.janúar 2011.