ingibjorg

Dagur leikskólans 6.febrúar 2012

Dagur leikskólans er 6 febrúar ár hvert. Þann dag árið 1950


stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.


Frá þeim tíma hefur átt sér stað markviss umræða um gildi


leikskólans í íslensku samfélagi.

Bóndadagur í Álfheimum 20. janúar 2012


Bóndadagur í Álfheimum 20. janúar 2012


Í tilefni að bóndadegi, fyrsta degi í Þorra verður opið hús í Álfheimum frá kl:8,00—10,00 fyrir alla stráka á öllum aldri sem tengjast nemendum leikskólans (pabba, afa, bræður, o.fl.).


Á boðstólum verður heitur hafragrautur, slátur, lýsi og kaffi.


Mælst er til þess að allir karlmenn beri hálstau þennan dag s.s. bindi, klúta og slaufur

Rafmagnslaus dagur 11. janúar 2012


Rafmagnslaus dagur 11.janúar 2012


Rafmagnslaus dagur verður í leikskólanum Álfheimum


miðvikudaginn 11.janúar frá kl; 7,45-13,00.


Boðið verður upp á heitt kakó og brauð við eldstæðið úti í


garði frá kl:8,30. .


Engin ljós verða kveikt og rafmagnstækin hvíla sig þennan


tíma.


Tilgangurinn er að gera okkur öll meðvitaðri um mikilvægi


rafmagns og spara orku.


Gaman væri ef börnin hefðu með sér


vasaljós og gott er að merkja þau vel.