Álfheimar

Innritun í grunnskóla skólaárið 2024-2025

Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla má finna í eftirfarandi frétt á heimasíðu Árborgar https://www.arborg.is/frettasafn/innritun-i-grunnskola-skolaarid-2024-2025

Álfheimar fá gróðurhús

  Leikskólinn Álfheimar á Selfossi hlaut styrk úr samfélagssjóðum Krónunnar og Landsvirkjunar og nýtti styrkina til að kaupa sér Bamba gróðurhús. Foreldrafélagið sá svo til þess að við fengjum húsið sent til okkar og keyptu handa okkur mold í gróðurkerin sem fylgja með. Bambahúsin eru íslensk framleiðsla úr endurunnu efni, þau eru sterk og henta …

Álfheimar fá gróðurhús Lesa Meira>>

Skipulagsdagar og starfsmannafundir veturinn 2023-2024

10. ágúst – leikskólinn opnar eftir sumarlokun klukkan klukkan 13:00 18. ágúst – Leikskólinn lokaður – Fræðsludagur Árborgar 11. september 8:00-10:00 – Starfsmannafundur – leikskólinn opnar 10:00 29. september – Leikskólinn lokaður – Haustþing 30. október 8:00-10:00 – starfsmannafundur – leikskólinn opnar 10:00 22. nóvember – Leikskólinn lokaður – Skipulagsdagur 2. janúar – Leikskólinn lokaður …

Skipulagsdagar og starfsmannafundir veturinn 2023-2024 Lesa Meira>>

Páskaeggjaleit foreldrafélags Álfheima

Árleg páskaeggjaleit foreldrafélags Álfheima var haldin laugardaginn 1. apríl á lóð leikskólans. Þetta var skemmtileg samverustund og gaman að sjá hve margir komu en yfir 100 börn voru skráð. Hlökkum til næstu páska Stjórn foreldrafélags Álfheima

Fræðsluefni frá skólaþjónustu Árborgar

Á heimasíðu Árborgar má nálgast áhugavert fræðsluefni frá skólaþjónustu Árborgar.   Þar er áherslan að mestu á málþroska og bendum við sérstaklega á áhugaverð myndbönd frá talmeinafræðingum skólaþjónustunnar.   Við hvetjum alla til að kynna sér þessi myndbönd og fræðslu.   https://www.arborg.is/stjornsysla/svid-og-deildir/fjolskyldusvid/fraedsluthjonusta/fraedsluefni/#   

Í lok mars 2023 hefst innritun í leikskóla Árborgar og stendur innritun fram í júní. Þetta þýðir að það fá ekki allir foreldrar boð um vistun fyrir börn sín á sama tíma Mikilvægt er að búið sé að skrá leikskólaumsóknir, hvort sem er vistunarumsókn eða flutning á milli leikskóla, fyrir 20. mars 2023 svo öruggt sé að …

Lesa Meira>>

Dagur leikskólans 6. febrúar

Leikskólinn Álfheimar  Álfheimar eru leikskóli staðsettur á horni Sólvalla og Reynivalla á Selfossi á svokölluðu Eikatúni sem kennt var við Eirík Bjarnason sem bjó á Reynivöllum 9.