evahronn

Dótadagur 4. júní

Föstudaginn 4. júní verður dótadagur í Álfheimum. Eftir langan og strangan covid vetur er loksins komið að því að hægt er að hafa dótadag. Börnin mega koma með dót að heiman þennan dag, vopn eru ekki leyfð. Við vekjum athygli á að gott er að merkja leikföngin og að starfsfólk leikskólans ber ekki ábyrgð á …

Dótadagur 4. júní Lesa Meira>>

Tiltektardagur í Álfheimum

Árlegur tiltektardagur var haldinn í Álfheimum í dag, föstudaginn 7. maí 2021. Stórir sem smáir tóku höndum saman og gerðu fínt í garðinum okkar eftir veturinn. Það þurfti meðal annars að sópa stéttar, hreinsa upp úr sandrennum, taka til í ruslageymslum og taka saman brotnar greinar. Einn hópur fór og týndi rusl hringinn í kringum …

Tiltektardagur í Álfheimum Lesa Meira>>

Föstudagurinn 23. apríl

Leikskólinn Álfheimar verður lokaður föstudaginn 23. apríl vegna sóttkvíar starfsfólks deilda, eldhúss og stjórnenda. Við vonumst til að eðlilegt skólastarf hefjist eftir helgi. Gleðilegt sumar

Leikskólinn lokaður

Leikskólinn Álfheimar verður lokaður þriðjudaginn 20. apríl vegna smits sem kom upp í starfsmannahópnum. Starfsmenn Álfheima verða allir sendir í skimun og því er leikskólinn lokaður. Nánari upplýsingar til foreldra þeirra barna sem þurfa að fara í sóttkví koma eins fljótt og hægt er.